Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
   sun 29. mars 2026 16:44
Brynjar Ingi Erluson
Ætla að gera Alvarez að þeim launahæsta
Julian Alvarez
Julian Alvarez
Mynd: EPA
Spænska félagið Atlético Madríd ætlar að gera argentínska sóknarmanninn Julian Alvarez að launahæsta leikmanni félagsins, en þetta segir spænski miðillinn Marca í dag.

Alvarez hefur skorað 17 mörk og gefið 9 stoðsendingar með Atlético á þessari leiktíð og hefur undanfarna mánuði verið orðaður við endurkomu í ensku úrvalsdeildina.

Atlético vill ekki missa Alvarez sem er án efa mikilvægasti leikmaður liðsins í dag.

Marca segir að Atlético hafi þegar hafið undirbúningsvinnu varðandi framlengingu á nýjum samningi, en félagið er reiðubúið að gera hann að launahæsta leikmanni liðsins.

Ef hann samþykkir samninginn mun hann þéna um 10 milljónir evra í árslaun.

Samkvæmt heimildum Marca er Alvarez og fjölskylda hans ánægð í Madríd og er talið líklegra að hann muni framlengja en að fara annað.

Alvarez kom til Atlético frá Manchester City árið 2024 og var í liði ársins á fyrsta tímabili sínu á Spáni.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner