Chelsea hefur verið í miklum vandræðum með markverðina sína undanfarin ár.
Robert Sanchez hefur fengið mikla gagnrýni en Enzo Maresca setti traustið á hann. Liam Rosenior hefur hins vegar verið duglegur að gefa Filip Jörgensen tækifæri en stjórinn hefur verið gagnrýndur fyrir tíðar breytingar á markvarðarstöðunni.

Alex Crook segir að Chelsea ætti að næla í Jordan Pickford, markvörð Everton.
„Ég get ekki tekið Chelsea alvarlega sem fótboltafélagi. Ég skil ekki verkefnið, ég skil ekki hvers vegna þessir eigendur komu inn. Okkur var tilkynnt að Chelsea væri ánægt með markverðina sínan, þeir eru með fjóra eða fimm sem gætu orðið mögulegir byrjunarliðsmenn," sagði Crook.
„Ég er með umdeilda skoðun, það er einföld lausn. Farið og náið í gæjann sem hefur haldið hundrað sinnum hreinu fyrir Everton. Náið í aðalmarkvörð enska landsliðsins. Hann er ekki að yngjast en er ekki gamall í samhengi markvarðar, hann varð 32 ára fyrr í þessum mánuði."
Athugasemdir