Katla Tryggvadóttir sneri aftur í lið Fiorentina í dag eftir erfið veikindi. Katla gat ekki verið með landsliðinu gegn Spáni og Englandi í undankeppni HM en hún lá á sjúkrahúsi í viku.
Fiorentina heimsótti Juventus í undanúrslitum ítalska bikarsins en Juventus náði tveggja marka forystu. Hin norsk-íslenska Iris Ómarsdóttir kom inn á í hálfleik og klóraði í bakkann, 2-1 lokatölur en Juventus vann viðureignina 4-1 og mætir Roma í úrslitum.
Katla kom inn á eftir klukkutíma leik en þetta var fyrsti leikurinn hennar í rúman mánuð. Þá var Hlín Eiríksdóttir í byrjunarliðinu en hún spilaði 75 mínútur.
Ingibjörg Sigurðardóttir var ónotaður varamaður þegar Freiburg tapaði 2-1 gegn Hoffenheim í þýsku deildinni. Freiburg er í 7. sæti með 30 stig eftir 22 umferðir.
Athugasemdir



