Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
banner
   sun 29. mars 2026 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Beckham segir að Carrick sé besti stjóri United síðasta áratuginn
Mynd: EPA
Manchester United goðsögnin David Beckaham hrósar Michael Carrick í hástert fyrir frammistöðu hans sem stjóri liðsins.

Carrick tók við af Ruben Amorim sem var látinn taka pokann sinn í byrjun árs. Man Utd hefur unnið sjö leiki gert tvö jafntefli og tapað einum leik undir stjórn Carrick.

„Ég verð að viðurkenna að síðustu mánuðir hafa verið mun þægilegri en síðustu tíu ár. Þetta var erfitt á þeim tíma. Carrick er með reynslu, hann hefur ró sem hann hefur komið með inn í félagið. Hann þekkir félagið og leikmennina. Hann veit hvernig Man Utd spilar og hvernig félagið á að spila," sagði Beckham.

„Það er magnað hvernig hann hefur náð að koma samheldni inn í liðið. Sem stuðningsmaður United þá er það nákvæmlega það sem þurfti."
Slapp
Athugasemdir
banner