Breiðablik 4 - 1 Víkingur R.
1-0 Barbára Sól Gísladóttir ('6 )
2-0 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('7 )
2-1 Emma Steinsen Jónsdóttir ('9 )
3-1 Líf Joostdóttir van Bemmel ('34 )
4-1 Edith Kristín Kristjánsdóttir ('48 )
Lestu um leikinn
1-0 Barbára Sól Gísladóttir ('6 )
2-0 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('7 )
2-1 Emma Steinsen Jónsdóttir ('9 )
3-1 Líf Joostdóttir van Bemmel ('34 )
4-1 Edith Kristín Kristjánsdóttir ('48 )
Lestu um leikinn
Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks vörðu Lengjubikarstitilinn með því að vinna Víking, 4-1, á Kópavogsvelli í dag.
Blikar náðu tveggja marka forystu snemma leiks
Barbára Sól Gísladóttir lét vaða úr teignum á 6. mínútu og tvöfaldaði Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir forystuna með keimlíkri sókn og í fyrra markinu.
Ekki byrjunin sem Víkingar voru að vonast eftir en Emma Steinsen Jónsdóttir sá þó til þess að koma þeim aftur inn í leikinn með glæsilegu skoti fyrir utan teig sem fór í þverslá og inn.
Leikurinn róaðist aðeins eftir mark Emmu en þegar rúmur hálftími var liðinn bætti Líf Joostdóttir van Bemmel við þriðja marki Blika eftir að hafa komið sér í góða stöðu.
Jasmín Erla Ingadóttir var nálægt því að minnka muninn undir lok hálfleiksins eftir mistök hjá Blikum. Herdís Halla Guðbjartsdóttir var komin heldur langt út og náðu Víkingar að koma honum inn á Jasmín sem setti boltann þó yfir markið.
Þetta átti eftir að reynast dýrkeypt því strax í byrjun síðari hálfleiks gerði Edith Kristín Kristjánsdóttir út um leikinn eftir klaufaleg mistök Víkinga.
Breiðablik nokkuð sannfærandi Lengjubikarsmeistari og það í annað sinn í röð. Enn einn titillinn í safnið hjá Blikum sem geta bætt við öðrum næsta fimmtudag er það mætir FH í meistarar meistaranna.
Athugasemdir

