Bólivía og Jamaíka unnu leiki sína í umspili fyrir sæti á lokamóti heimsmeistaramótsins í sumar.
Bólivía vann endurkomusigur gegn Súrínam eftir að hafa lent undir í upphafi síðari hálfleiks og urðu lokatölur 2-1. Leikurinn var nokkuð jafn þar sem Súrínam var hættulegra liðið en tókst ekki að tryggja sigurinn.
Liðin áttust við í undanúrslitaleik og spilar Bólivía við Írak í úrslitaleik um sæti á HM.
Bailey Cadamarteri, tvítugur framherji Wrexham í Championship deildinni, skoraði þá eina mark leiksins á 18. mínútu er Jamaíka lagði Nýju-Kaledóníu að velli.
Jamaíka var sterkara liðið en komst lítið áleiðis gegn baráttuglöðum andstæðingum sem tókst þó ekki að gera jöfnunarmark.
Jamaíka mætir sterku landsliði Austur-Kongó í úrslitaleik um sæti á HM.
Bólivía 2 - 1 Súrínam
0-1 Liam van Gelderen ('48)
1-1 Moises Paniagua ('72)
2-1 Miguelito ('79, víti)
Nýja-Kaledónía 0 - 1 Jamaíka
0-1 Bailey Cadamarteri ('18)
Athugasemdir

