Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
   sun 29. mars 2026 15:30
Brynjar Ingi Erluson
Mbappe: Ég er ekki undanskilinn gagnrýni
Kylian Mbappe
Kylian Mbappe
Mynd: EPA
Kylian Mbappe, stjarna Real Madrid á Spáni, segist ekki vera undandskilinn gagnrýni og að margir af bestu leikmönnum í sögu félagsins hafi upplifað svipaða tíma hjá félaginu.

Margir Madrídingar voru óánægðir að sjá Mbappe fara með franska landsliðinu í æfingaleikina í þessum mánuði.

Hann missti af fimm leikjum með Real Madrid frá lok febrúar og til 14. mars, en spilað síðustu tuttugu mínúturnar í síðustu tveimur leikjum.

Flestir bjuggust við að hann myndi afþakka kallið í landsliðið til að koma sér í betra form, en hann ákvað að fara með franska landsliðinu í verkefnið.

Stuðningsmenn Real Madrid eru kröfuharðir og segist Mbappe skilja þeirra stöðu.

„Real Madrid er eins og trúarbrögð fyrir fólkinu á Spáni. Þeir eru með ástríðufullir og það er oft mikil umræða og pælingar, sem eiga stundum rétt á sér, en ekki endilega alltaf.“

„Þú verður að vita hvernig þú tæklar þessa gagnrýni því allir hafa verið gagnrýndir hjá Real Madrid. Cristiano Ronaldo, Alfredo Di Stefano og fleiri þannig af hverju ætti ég að vera undanskilinn?“

„Maður verður að halda ró sinni, einbeita sér að því sem maður þarf að gera og segja sjálfum þér að þú getir bætt eigin frammistöðu,“
sagði Mbappe.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner