Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
   sun 29. mars 2026 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fjórir leikmenn á undan Maguire í landsliðinu
Mynd: EPA
Harry Maguire fékk tækifæri með enska landsliðinu þegar hann byrjaði í 1-1 jafntefli gegn Úrugvæ á föstudagskvöldið.

Þetta er í fyrsta sinn frá því í september 2024 sem hann er í hópnum.

Maguire hefur staðið sig vel í öftustu línu hjá Man Utd eftir að Michael Carrick tók við liðinu. Thomas Tuchel telur hins vegar að fjórir aðrir leikmenn séu á undan honum í hópinn fyrir HM í sumar.

„Ég fékk nákvæmlega það sem ég hélt ég myndi fá. Góður varnarleikur. Þetta er það sem hann gerir, góður á boltann, rólegur, sterkur í loftinu og vopn í föstum leikatriðum," sagði Tuchel.

„Ég hef ekki skipt um skoðun en ég sé aðra leikmenn sem ég vil að byrji fyrir okkur. Ég sé Ezri Konsa og Marc Guehi á undan honum. Trevoh Chalobah er örlítið á undan honum hvað varðar hreyfigetu. Svo líka John Stones."
Slapp
Athugasemdir
banner