Spánarmeistarar Barcelona eru í viðræðum við umboðsmenn ítalska varnarmannsins Alessandro Bastoni sem leikur með Inter á Ítalíu en það er Fabrizio Romano sem greinir frá.
Börsungar ætla að styrkja varnarlínuna í sumarglugganum og hafa þegar hafið undirbúningsvinnu til að sækja Bastoni frá Inter.
Bastoni er 26 ára gamall og leikið með Inter frá 2017, en hann er að nálgast 300 leiki með ítalska félaginu.
Samkvæmt heimildum Romano hófust viðræður milli Barcelona og umboðsmanna Bastoni fyrir nokkrum dögum. Aðeins er verið að ræða kaup og kjör, en viðræður milli Barcelona og Inter eru ekki hafnar.
Þær viðræður munu ekki hefjast strax og hefur Inter ekki enn ákveðið hversu háa upphæð það vill fyrir ítalska landsliðsmanninn.
Bastoni varð Evrópumeistari með ítalska landsliðinu árið 2021 og verið fjórum sinnum í liði ársins í Seríu A.
Athugasemdir


