Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
   sun 29. mars 2026 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gæti farið til Real Madrid á tombóluverði - „Hann er ánægður hérna"
Mynd: EPA
Nico Paz, leikmaður Como, hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína á tímabilinu.

Como hefur spilað frábærlega undir stjórn Cesc Fabregas í ítölsku deildinni en liðið er í 4. sæti með 57 stig, fimm stigum á eftir Napoli sem er í 3. sæti.

Paz er 21 árs gamall sóknarsinnaður miðjumaður en hann gekk til liðs við félagið frá Real Madrid fyrir sex milljónir evra. Hann er metinn á 65 milljónir evra í dag en Real Madrid er með forkaupsrétt á honum og gæti fengið hann fyrir 9 milljónir evra.

„Hann er ánægður hérna. Möguleikinn að spila í Evrópukeppni gæti sannfært hann um að vera áfram. Þetta er kjörið umhverfi fyrir hann," sagði Carlalberto Ludi, yfirmaður fótboltamála hjá Como.

Paz hefur komið að 17 mörkum í ítölsku deildinni á þessu tímabili.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
Athugasemdir
banner