Thomas Tuchel, þjálfari Englendinga, segir að dómarateymið hafi átt slæman dag á skrifstofunni í 1-1 jafnteflinu gegn Úrúgvæ í gær, en nokkur umdeild atvik komu upp í leiknum.
Miðjumaðurinn Manuel Ugarte sá gult fyrir að brjóta á Cole Palmer og annað fyrir að tuða í dómaranum.
Dómarinn virðist ekki hafa áttað sig á því að þetta hafi verið annað gula spjald Ugarte sem fékk að klára leikinn.
BBC Match of the Day furðaði sig á þessu á X en fékk þó útskýringar á þessu og var sagt að Jose Gimenez hafi fengið fyrra spjaldið.
Dómgæslan var mjög sérstök í leiknum. Ronald Araujo, varnarmaður Úrúgvæ, var sömuleiðis heppinn að sjá ekki rautt þegar hann fór í groddalega tæklingu á Phil Foden. Það sem er enn furðulegra er að hann sá ekki einu sinni gult.
„Vondur dagur á skrifstofunni,“ sagði Thomas Tuchel, þjálfari Englendinga, er hann var spurður út í frammistöðu dómarateymisins í gær.
„Þetta var bara alls ekki góð frammistaða í gegnum allan leikinn. Ég get ekki skilið hvernig þeir skoða ekki einu sinni tæklingu eins og þessa (Araujo á Foden). Vítaspyrnan í lokin var mjög ódýr og leikmaður fékk tvö gul spjöld en ekki rekinn af velli,“ sagði hann ennfremur.
???? NEVER SEEN BEFORE! ????
— Polymarket FC (@PolymarketFC) March 27, 2026
Manuel Ugarte received TWO yellows against England and he was NOT sent off. ?????????
pic.twitter.com/TK91lIrSCC
This is intentional, man. Doing this in a friendly? You'd have to be a diabolical kind of player. Dark, dark stuff.pic.twitter.com/tZH2eUc8Nq
— Geronimo Morgans (@GeronimoMorgans) March 27, 2026
Athugasemdir


