Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, segir að frábær árangur íslenska landsliðsins hafi vakið athygli erlendis.
,,Þetta hefur vakið gríðarlega mikla athygli með A-landsliðið hjá karlinum. Auðvitað eru fleiri þættir, A-landslið kvenna og ekki síður yngri landsliðin okkar sem hafa öll verið að gera frábæra hluti," sagði Þórir.
Þórir segir að verið sé að undirbúa Laugardalsvöll af kappi fyrir umspilsleikinn gegn Króötum 15. nóvember.
,,Við erum að gera ráðstafanir og Laugardalsvöllur verður klár. Við spilum á Laugardalsvelli í nóvember og grasið verður grænt, það er klárt," sagði Þórir.
Hér að ofan má sjá viðtalið við Þóri í heild sinni en þar talar hann meðal annars um miðasöluna á leik Íslands og Króatíu.
Sjá einnig:
Miðasala á Ísland - Króatía hefst í kringum helgina





















