Jesus gæti farið heim til Brasilíu - Marseille vill fá Nwaneri lánaðan - Mikið ber á milli Konate og Liverpool
   lau 22. október 2022 17:59
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Origi með mark og stoðsendingu - Genoa deilir toppsætinu
Mynd: EPA

Ítalíumeistarar AC Milan eru búnir að jafna Napoli á toppi ítölsku deildarinnar eftir þægilegan sigur gegn nýliðum Monza í dag.


Brahim Diaz skoraði tvennu í fyrri hálfleik, annað markið eftir stoðsendingu frá Divock Origi sem skoraði svo sjálfur í seinni hálfleik. Origi nýtti tækifærið sitt vel.

Filippo Ranocchia minnkaði muninn fyrir gestina með frábæru marki beint úr aukaspyrnu af rúmlega 30 metra færi. Besti leikmaður Serie A á síðustu leiktíð, Rafael Leao, kom inn af bekknum á 60. mínútu og innsiglaði sigur Milan á lokakaflanum. Lokatölur 4-1 og Milan er með 26 stig eftir 11 umferðir á meðan Monza er með 10 stig.

Mikael Egill Ellertsson var þá ónotaður varamaður er Spezia tapaði á útivelli gegn Salernitana. Spezia er með 9 stig eftir tapið, fjórum stigum frá fallsvæðinu.

Sjáðu frábært mark Divock Origi

AC Milan 4 - 1 Monza
1-0 Brahim Diaz ('16)
2-0 Brahim Diaz ('41)
3-0 Divock Origi ('65)
3-1 Filippo Ranocchia ('70)
4-1 Rafael Leao ('84)

Salernitana 1 - 0 Spezia
1-0 Pasquale Mazzocchi ('48)

Í B-deildinni lék Albert Guðmundsson í rúmar 90 mínútur er Genoa vann mikilvægan sigur á útivelli gegn Ternana. 

Heimamenn í Ternana komust yfir og leiddu í hálfleik en Massimo Coda sneri stöðunni við með tvennu á þriggja mínútna kafla.

Genoa deilir toppsætinu með Frosinone þar sem bæði lið eiga 21 stig eftir 10 umferðir.

Enginn Íslendingur var þá í leikmannahópi Venezia sem gerði jafntefli við Brescia. Venezia er í fallsæti með 9 stig.

Ternana 1 - 2 Genoa

Brescia 1 - 1 Venezia


Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 21 16 1 4 44 17 +27 49
2 Milan 21 13 7 1 34 16 +18 46
3 Napoli 21 13 4 4 31 17 +14 43
4 Roma 21 14 0 7 26 12 +14 42
5 Juventus 21 11 6 4 32 17 +15 39
6 Como 21 10 7 4 31 16 +15 37
7 Atalanta 21 8 8 5 26 20 +6 32
8 Bologna 21 8 6 7 30 24 +6 30
9 Lazio 21 7 7 7 21 19 +2 28
10 Udinese 21 7 5 9 22 33 -11 26
11 Sassuolo 21 6 5 10 23 28 -5 23
12 Cremonese 21 5 8 8 20 28 -8 23
13 Parma 21 5 8 8 14 22 -8 23
14 Torino 21 6 5 10 21 34 -13 23
15 Cagliari 21 5 7 9 22 30 -8 22
16 Genoa 21 4 8 9 22 29 -7 20
17 Fiorentina 21 3 8 10 23 32 -9 17
18 Lecce 21 4 5 12 13 29 -16 17
19 Pisa 21 1 11 9 16 31 -15 14
20 Verona 21 2 8 11 17 34 -17 14
Athugasemdir
banner
banner