Jack Grealish stökk til varnar er hann sá færslu á Instagram þar sem Raheem Sterling var harðlega gagnrýndur.
Sterling skipti nýverið yfir til Feyenoord í Hollandi eftir erfiðan tíma hjá Chelsea. Sterling átti erfiðan fyrsta leik með Feyenoord og fann sig ekki alveg.
Sterling skipti nýverið yfir til Feyenoord í Hollandi eftir erfiðan tíma hjá Chelsea. Sterling átti erfiðan fyrsta leik með Feyenoord og fann sig ekki alveg.
Í Instagram færslu hjá Football Park var mikið skotið á Sterling. „Enski kantmaðurinn leit út eins og bambi á ís," stóð í færslunni og þar var jafnframt ýjað að því að kantmaðurinn þyrfti að leggja skóna á hilluna.
Grealish sá þetta og var ekki skemmt.
„Ekkert eðlilega heimsk færsla. Hvað er að ykkur?" skrifaði Grealish reiður við færsluna. „Gæinn hefur ekki spilað eða æft mjög lengi. Fólk eins og þið er það sem er að í heiminum. Sýnið virðingu."
Grealish þekkir Sterling vel úr enska landsliðinu og Manchester City.
Sterling spilaði ekkert með Chelsea á tímabilinu og æfði bara einn þar sem hann var algjörlega út í kuldanum áður en hann gekk í raðir Feyenoord.
Robin van Persie, stjóri hollenska liðsins, sagði eftir fyrsta leik Sterling að það myndi taka enska kantmanninn einhvern tíma að ná upp líkamlegu formi þar sem hann hefur ekki æft í hóp í marga mánuði.
Hér fyrir neðan má sjá færsluna sem gerði Grealish fúlan.
Athugasemdir


