Man Utd gæti keypt McTominay til baka - Man Utd hrifið af Sangare - Real Madrid með augun á Van de Ven
   þri 24. febrúar 2026 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Landsliðsbónusar lækkaðir um helming - „Í stöðugri skoðun"
PEI
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Í hlaðvarpsþættinum Þungavigtinni í síðustu viku var Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ, til viðtals hjá Kristjáni Óla Sigurðssyni. Þar kom fram að landsliðsbónusar, stigabónusar fyrir leikmenn, hefðu verið lækkaðir um helming.

Leikmenn A-landsliðanna höfðu um árabil fengið 100 þúsund krónur fyrir hvert stig sem vannst í keppnisleikjum. Eysteinn svaraði nokkrum spurningum Fótbolta.net um málið.

„Stigabónus leikmanna A karla og A kvenna var 50 þúsund á stig árið 2025. Þetta á við í keppnisleikjum," segir Eysteinn. Hann tók ekki fram hvers vegna og nákvæmlega hvenær bónusinn hefði verið lækkaður.

Hver er hugsunin á bakvið stigabónusa, til hvers eru þeir? Eru sömu bónusar fyrir að vinna efsta lið heimslistans og það neðsta? Hefur ekki komið til tals að hafa einungis stórmóta bónusa, einungis bónusa ef liðið kemst á stórmót og svo árangurinn á sjálfu mótinu?

„Stigabónus er umbun fyrir góðan árangur og er þetta eitthvað sem hefur einnig tíðkast hjá öðrum landsliðum í knattspyrnu. Það er ekki munur á stigabónusum eftir mótherja. Þetta eins og allt annað er alltaf í stöðugri skoðun."

Er einhver markabónus fyrir landsliðsfólk eða ef haldið er hreinu?

„Nei."

Að öðru í fjármálum í tengslum við landsliðin. Fær landsliðsfólk dagpeninga á meðan það er í verkefni með landsliðunum? Ef já, er það eins ef leikirnir eru heima og erlendis, vináttu eða keppnisverkefni?

„Já, landsliðsfólk hjá A karla og kvenna fær dagpeninga í verkefnum."

Í síðustu viku greindi landsliðsþjálfari kvenna, Þorsteinn Halldórsson, frá því að Agla María Albertsdóttir hefði ekki gefið kost á sér í landsliðsverkefni sökum vinnu.

Það eru stundum leikmenn sem eru ekki 100% atvinnumenn valdir í landsliðshópa, oftar kvennamegin, hjálpar KSÍ þeim að koma til móts við vinnutap? Nú sjáum við leikmann eins og Öglu Maríu ekki gefa kost á sér í landsliðið sökum vinnu, er eitthvað sem KSÍ gæti gert til að slíkt gerist ekki í framtíðinni?

„KSÍ hefur ekki greitt vinnutap eftir því sem ég best veit. Hins vegar veit ég að vinnuveitendur hafa yfirleitt stutt vel við bakið á sínu afreksíþróttafólki," segir Eysteinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner