John Obi Mikel, fyrrum leikmaður Chelsea, segir að Lundúnafélagið hafi gert hræðileg mistök með því að reka Enzo Maresca fyrr á þessu tímabili.
Hann telur liðið hafa tekið fimm skref aftur á bak eftir að Liam Rosenior tók við stjórnartaumunum.
Hann telur liðið hafa tekið fimm skref aftur á bak eftir að Liam Rosenior tók við stjórnartaumunum.
„Við vorum með Enzo Maresca. Ég hef sagt það áður en ég tel að það hafi verið hræðileg mistök að reka hann," sagði Obi Mikel.
„Þetta er fáránlegt. Hann vann HM félagsliða og Sambandsdeildina. Við tókum skref fram á við en núna höfum við tekið fimm skref til baka."
„Liam hefur komið inn og unnið leiki en það er klárlega eitthvað sem vantar. Það er eitthvað sem er ekki rétt."
Chelsea er í harðri baráttu við Manchester United og Liverpool um Meistaradeildarsæti.
Athugasemdir



