Kjartan Kári Halldórsson er byrjaður að æfa á ný eftir að hafa meiðst á hné fyrr í þessum mánuði. Hann sneri upp á hnéð á æfingu liðsins og útlitið var ekki gott. Hann var ekki með FH gegn Breiðabliki í Lengjubikarnum fyrir helgi.
Hann segist ekki hafa getað gert neitt í tvo daga og var óttast um að hann hefði slitið krossband í hné.
Eftir MRI skoðun kom í ljós að krossbandið er heilt en möguleiki er á að það hafi myndast smá rifa í liðþófa.

„Ég er orðinn betri núna, byrjaður að taka þátt í öllu á æfingu nema spili. Ég stefni á að verða mættur aftur á völlinn í næstu viku," segir Kjartan Kári við Fótbolta.net.
Kjartan Kári er algjör lykilmaður í liði FH og hefur verið orðaður við atvinnumennsku í vetur.
Vinstri kantmaðurinn skoraði sex mörk og lagði upp tíu í Bestu deildinni í fyrra.
Athugasemdir