„Þögnin frá FIFA hefur verið þrúgandi en hún sýnir vanhæfni samtakanna í að takast á við raunveruleg vandamál fyrir HM,“ skrifar Jeremy Cross, yfiríþróttafréttamaður hjá Mirror.
Hann segir að FIFA eigi ekki annan kost en að taka HM leiki af Mexíkó vegna ástandsins í landinu. Mikil umræða skapast um öryggismál í aðdraganda HM í sumar; sem á að fara fram í Mexíkó auk Kanada og Bandaríkjunum.

Óeirðir hafa verið víða í Mexíkó síðustu daga eftir að Nemesio Oseguera Cervantes féll í bardögum við lögreglu. Hann var yfirmaður Jalisco-glæpagengisins.
„Infantino þarf að bregðast við, þögnin frá honum hjálpar ekki," segir Cross.
„Meðal leikja á HM sem eiga að fara fram í Mexíkó er opnunarleikurinn á endurnýjuðum Azteca leikvanginum. Þar eru framkvæmdir á eftir áætlun og umræða um að hann verði mögulega ekki tilbúinn."
Athugasemdir