Völsungur mun taka sæti í Lengjudeild kvenna næsta sumar þar sem ÍH hefur ákveðið að draga lið sitt úr keppni.
ÍH vann sér inn sæti í Lengjudeildinni síðasta sumar með því að enda í öðru sæti 2. deildar eftir skemmtilega baráttu. Völsungur endaði í þriðja sætinu en Selfoss vann deildina.
ÍH vann sér inn sæti í Lengjudeildinni síðasta sumar með því að enda í öðru sæti 2. deildar eftir skemmtilega baráttu. Völsungur endaði í þriðja sætinu en Selfoss vann deildina.
ÍH hefur verið vettvangur fyrir unga leikmenn úr FH að fá tækifæri í meistaraflokki síðustu ár. Þarna hefur verið unnið flott starf en núna hefur verið ákveðið að draga liðið úr keppni.
Ungu leikmennirnir úr FH munu því frekar spila með 2. og 3. flokki, en margir af þeim leikmönnum sem hafa spilað með ÍH undanfarin ár eru komnar í FH sem spilar í Bestu deildinni og koma til með að fá hlutverk þar.
Völsungur á því núna lið í bæði Lengjudeild karla og kvenna sem er býsna vel gert hjá eins litlu bæjarfélagi og Húsavík er.
Drög að 2. deild kvenna
KSÍ hefur gefið út drög að 2. deild kvenna fyrir komandi sumar. Augnablik og KFR koma inn í mótið að þessu sinni. Augnablik var ekki með síðasta sumar en þær hafa áður verið með í Íslandsmótinu en gera má ráð fyrir því að ungar stelpur úr Breiðabliki fái þar sénsinn.
Sindri og ÍH hafa dregið sig úr keppni frá því síðasta sumar. Augnablik og KFR koma inn í þeirra stað.
Fyrri hluti mótsins er leikinn frá 7. maí - 25. júlí. Seinni hluti mótsins verður leikinn frá 8. ágúst - 12. september.
Hægt er að skoða liðin í 2. deild kvenna og drög að niðurröðun með því að smella hérna.
Athugasemdir




