Man Utd gæti keypt McTominay til baka - Man Utd hrifið af Sangare - Real Madrid með augun á Van de Ven
   þri 24. febrúar 2026 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Horfa til Nottingham í leit að arftaka Casemiro
Sangare í leik með Nottingham Forest.
Sangare í leik með Nottingham Forest.
Mynd: EPA
Manchester United horfir til Nottingham Forest í leit að arftaka Casemiro samkvæmt heimildum vefmiðilsins GiveMeSport.

Leikmaðurinn sem um ræðir er miðjumaðurinn Ibrahima Sangare sem hefur heillað United að undanförnu.

Talið er að Man Utd vilji bæta við sig tveimur miðjumönnum í sumar en Elliot Anderson, liðsfélagi Sangare, hefur einnig verið orðaður við félagið. Þá eru Carlos Baleba, Sandro Tonali, og Adam Wharton einnig á óskalistanum ásamt Angelo Stiller, sem spilar með Stuttgart í Þýskalandi.

Sangare er hávaxinn og sterkur miðjumaður sem hefur leikið vel með Nottingham Forest upp á síðkastið. Hann var maður leiksins gegn Liverpool um síðustu helgi.

Sangare verður 29 ára seinna á þessu ári og spurning er hvort það vinni gegn honum.
Athugasemdir
banner
banner