Man Utd gæti keypt McTominay til baka - Man Utd hrifið af Sangare - Real Madrid með augun á Van de Ven
   þri 24. febrúar 2026 12:40
Elvar Geir Magnússon
England og Portúgal berjast um Mane
Mateus Mane.
Mateus Mane.
Mynd: EPA
England og Portúgal berjast um portúgalska framherjann Mateus Mane sem er löglegur með báðum þjóðum.

Roberto Martínez, landsliðsþjálfari Portúgals, vill fá Mane til að spila fyrir Portúgal en þessi 18 ára leikmaður hefur vakið athygli með framgöngu sína með Wolves.

Mane fæddist í Portúgal en hefur spilað fyrir enska U18 landsliðið.

BBC segir að Mane og hans fólk hafi ekki tekið neina ákvörðun um framtíð hans í landsliðsboltanum, einbeitingin sé á félagsliðaferlinum.

Mane er tvö mörk í 20 leikjum fyrir aðallið Wolves og varð yngsti markaskorari félagsins í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner