Man Utd gæti keypt McTominay til baka - Man Utd hrifið af Sangare - Real Madrid með augun á Van de Ven
   þri 24. febrúar 2026 17:00
Elvar Geir Magnússon
McGinn stefnir á endurkomu í Evrópuleikjunum
Mynd: EPA
Aston Villa vonast til þess að John McGinn snúi aftur til leiks þegar liðið spilar Evrópudeildarleiki í næsta mánuði.

McGinn, sem er fyrirliði Villa, hefur verið fjarri góðu gamni síðan hann meiddist á hné í tapleiknum gegn Everton í janúar og hefur síðan gengist undir aðgerð.

Fjarvera hans ásamt öðrum lykilmönnum á miðsvæðinu; Boubacar Kamara og Youri Tielemans, hefur bitið Villa fast. Án þeirra þriggja hefur Villa aðeins unnið tvo af sex síðustu leikjum í öllum keppnum.

Villa komst beint í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar en fyrri leikirnir þar verða spilaðir 12. mars.

Þremur dögum síðar tekur Villa á móti Manchester United á Old Trafford, í leik sem gæti verið ansi mikilvægur í baráttunni um sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili

Það er nánast víst að Kamara kemur ekki meira við sögu á tímabilinu en Tielemans stefnir á endurkomu í byrjun apríl.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 28 18 7 3 56 21 +35 61
2 Man City 27 17 5 5 56 25 +31 56
3 Aston Villa 27 15 6 6 38 28 +10 51
4 Man Utd 27 13 9 5 48 37 +11 48
5 Chelsea 27 12 9 6 48 31 +17 45
6 Liverpool 27 13 6 8 42 35 +7 45
7 Brentford 27 12 4 11 40 37 +3 40
8 Bournemouth 27 9 11 7 43 45 -2 38
9 Everton 27 10 7 10 29 31 -2 37
10 Fulham 27 11 4 12 38 41 -3 37
11 Newcastle 27 10 6 11 38 39 -1 36
12 Sunderland 27 9 9 9 28 33 -5 36
13 Crystal Palace 27 9 8 10 29 32 -3 35
14 Brighton 27 8 10 9 36 34 +2 34
15 Leeds 27 7 10 10 37 46 -9 31
16 Tottenham 27 7 8 12 37 41 -4 29
17 Nott. Forest 27 7 6 14 25 39 -14 27
18 West Ham 27 6 7 14 32 49 -17 25
19 Burnley 27 4 7 16 29 52 -23 19
20 Wolves 28 1 7 20 18 51 -33 10
Athugasemdir
banner
banner