Marokkóski bakvörðurinn Achraf Hakimi hjá Paris Saint-Germain hefur ítrekað sakleysi sitt en hann þarf að mæta fyrir dóm þar sem hann er sakaður um nauðgun.
Málið kom upp í 2023 en hann er sakaður um að hafa nauðgað 24 ára konu á heimili sínu í París.
„Í dag nægir ásökun um nauðgun til að vera boðaður í réttarhöld; jafnvel þótt ég mótmæli þessum ásökunum og segi að þær séu lygi. Þær eru jafn ósanngjarnar gagnvart saklausum og þeim sem eru raunveruleg fórnarlömb. Ég bíð rólegur eftir þessum réttarhöldum, sem munu leiða sannleikann í ljós opinberlega," skrifaði Hakimi á X.

Í september fór hann í viðtal og sagði að þessar ásakanir hafi verið það erfiðasta sem hann hafi lent í.
„Þetta er mesta högg sem ég hef upplifað. Það er alltaf verið að ljúga meira og það særir mann. Þetta er erfitt fyrir mig og fjölskyldu mína," sagði Hakimi í viðtalinu og sagðist viss um rétta niðurstöðu í málinu.
„Alltaf þegar þeir þurfa á mér að halda hef ég verið klár. Þeir eru með DNA frá mér, alltaf þegar þeir báðu um eitthvað þá var ég klár, ólíkt þeirri manneskju sem ásakar mig og flækir alla hluti. Þökk sé starfi lögreglunnar þá höfum við fundið nokkra góða hluti og ég veit að ég er í góðum höndum með lögmanni mínum. Réttlætið mun sigra að lokum."
Meint atvik átti sér stað núna á laugardagskvöldið 25. febrúar á heimili Hakimi. Konan fór heim til fótboltastjörnunnar með Uber bifreið sem hann pantaði sjálfur. Samkvæmt frásögn konunnar fóru hlutirnir úr böndunum þegar hún kom inn í íbúðina og vildi ekki stunda samfarir.
Hún segir hann hafa farið yfir ýmis mörk áður en henni tókst að losa sig með því að sparka í hann. Þá náði hún að grípa í símann sinn og senda skilaboð til vinkonu sinnar um að koma að sækja sig.
Aujourd’hui une accusation de viol suffit à justifier un procès alors même que je la conteste et que tout démontre qu’elle est fausse. C’est aussi injuste pour les innocents que pour les victimes sincères. J’attends avec calme ce procès qui permettra que la vérité éclate…
— Achraf Hakimi (@AchrafHakimi) February 24, 2026
Athugasemdir