Man Utd gæti keypt McTominay til baka - Man Utd hrifið af Sangare - Real Madrid með augun á Van de Ven
   þri 24. febrúar 2026 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vonar að Breki verði áfram úti
Breki Baldursson.
Breki Baldursson.
Mynd: Esbjerg
Heyrst hefur undanfarið að Breki Baldursson sé mögulega á heimleið í Fram.

Breki er efnilegur miðjumaður sem var keyptur til Esbjerg í Danmörku árið 2024, á átjánda afmælisdaginn sinn.

Breki spilaði samtals 42 leiki fyrir meistaraflokk Fram og skoraði tvö mörk áður en hann fór út. Breki hefur leikið 16 keppnisleiki með aðalliði Esbjerg eftir að hann fór í atvinnumennsku.

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var spurður út í mögulega heimkomu Breka í viðtali við Fótbolta.net í dag.

„Það hefur ekkert komið upp á borð til okkar. Ég vona að Breki verði áfram úti og berjist fyrir sínu. Hann er búinn að bæta sig fullt, við höfum tekið eftir því þegar hann hefur mætt á æfingar hjá okkur í vetur og haust," sagði Rúnar.

Hann óskar þess að Breki haldi áfram úti og berjist um að komast þar í liðið.

„Ég persónulega myndi óska þess að Breki muni berjast í gegnum sitt og koma sér í liðið úti. Auðvitað er hann alltaf velkominn til baka í Fram. Við tökum gjarnan á móti okkar fyrrverandi leikmönnum ef þeir vilja koma aftur. En auðvitað hvetur maður þessa stráka að halda áfram að leggja á sig og berjast fyrir sínu.“
Athugasemdir
banner