Man Utd gæti keypt McTominay til baka - Man Utd hrifið af Sangare - Real Madrid með augun á Van de Ven
   þri 24. febrúar 2026 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Borgar nokkrar milljónir í sekt ef þú ert seinn
Hansi Flick, þjálfari Barcelona.
Hansi Flick, þjálfari Barcelona.
Mynd: EPA
Pedri og Ferran Torres, leikmenn Barcelona, komu fyrir í sjónvarpsþætti á Spáni á dögunum. Þar sögðu þeir frá ýmsu en það áhugaverðasta var hvernig tekið er á agamálum hjá Börsungum.

Hansi Flick, þjálfari Barcelona, er ekkert lamb að leika við sér við. Hann er harður í horn að taka og er ætlast til þess að leikmenn Katalóníustórveldisins fylgi öllum reglum. Annars hefur það afleiðingar.

„Ef þú ert seinn, þá þurfa aðrir að bíða eftir þér og það er vanvirðing," sagði Pedri.

Það hafa orðið breytingar á því á þessu tímabili hvernig tekið er á því þegar leikmenn mæta seint. Núna hefur það fjárhagslegar afleiðingar fyrir leikmenn liðsins.

„Ef þú ert seinn, þá þarftu að borga sekt. Ef þú ert tíu mínútum of seinn í leik þá þarftu að borga 40 þúsund evrur. Ef þú ert 20 mínútum of seinn þá geturðu alveg eins sleppt því að mæta," sögðu þeir og bættu við að Flick er mjög nákvæmur með þetta, þó þú sért nokkrum sekúndum of seinn þá þarftu að borga sekt.

Þess má geta að 40 þúsund evrur eru tæpar 5,8 milljónir íslenskra króna.
Athugasemdir
banner
banner