Man Utd gæti keypt McTominay til baka - Man Utd hrifið af Sangare - Real Madrid með augun á Van de Ven
   þri 24. febrúar 2026 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrrum félag Birkis með -54 stig og -104 í markatölu
Birkir Bjarnason.
Birkir Bjarnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er mikið rugl í gangi hjá tyrkneska félaginu Adana Demirspor þessa stundina. Liðið er núna í B-deild Tyrklands og situr þar á botninum með -54 stig og -104 í markatölu.

Adana Demirspor er félag með nokkuð ríka sögu í Tyrklandi en liðið féll úr efstu deild í fyrra. Núna er liðið búið að gera þrjú jafntefli og tapa 24 leikjum í B-deildinni. Sigurleikirnir eru núll talsins.

Það hafa verið tekin 57 stig af félaginu á þessu tímabili en fall Adana Demirspor hefur verið sláandi.

Það eru bara tæp þrjú ár síðan Ítalinn Vincenzo Montella kom liðinu í Evrópukeppni en núna er allt í rugli utan sem innan vallar. Skuldirnar hafa hækkað og hækkað, en félagið hefur ekki borgað laun né staðið við aðrar skuldbindingar.

Adana Demirspor er ekki með leyfi til að styrkja leikmannahóp sinn út af öllum skuldunum og liðið er alls ekki samkeppnishæft.

Birkir Bjarnason, leikjahæsti fótboltamaður í sögu íslenska karlalandsliðsins, spilaði með Adana Demirspor frá 2021 til 2023.
Athugasemdir
banner
banner
banner