Bandaríski rapparinn Snoop Dogg fékk frábærar móttökur þegar hann mætti á leik Swansea og Preston í Championship, næst efstu deild Englands í kvöld.
Snoop Dogg gerðist minnihlutaeigandi hjá Swansea síðasta sumar og mætti á sinn fyrsta leik í kvöld. Það var mikil spenna á leikvanginum fyrir komu hans og þegar hann mætti út þá var andrúmsloftið rafmagnað eins og sjá má á myndbandinu neðst í fréttinni.
Snoop Dogg gerðist minnihlutaeigandi hjá Swansea síðasta sumar og mætti á sinn fyrsta leik í kvöld. Það var mikil spenna á leikvanginum fyrir komu hans og þegar hann mætti út þá var andrúmsloftið rafmagnað eins og sjá má á myndbandinu neðst í fréttinni.
Rapparinn fékk skemmtilegan fyrsta leik því Swansea jafnaði í uppbótartíma, lokatölur 1-1.
Það voru í heildina átta leikir í Championship í kvöld. Andri Lucas Guðjohnsen kom inn af bekknum í síðari hálfleik hjá Blackburn sem tapaði heima fyrir Bristol City. Andri Lucas og félagar eru í harðri fallbaráttu, eru fjórum stigum á undan Leicester sem er í síðasta fallsætinu eins og er.
Leicester mætti Middlesbrough í kvöld og gerði þar jafntefli. Middlesbrough er í öðru sæti og stefnir á að leika í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.
Annað lið sem stefnir á að spila í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð er Wrexham, sem er í eigu Hollywood leikarana Ryan Reynolds og Rob McElhenney. Wrexham styrkti stöðu sína í umspilssæti með sigri gegn Portsmouth í kvöld.
Hér fyrir neðan má sjá úrslitin í öllum leikjum kvöldsins í Championship.
Southampton 5 - 0 QPR
1-0 Finn Azaz ('9 )
2-0 Kuryu Matsuki ('45 )
3-0 Kuryu Matsuki ('50 )
4-0 Leo Scienza ('59 )
5-0 James Bree ('70 )
Hull City 4 - 2 Derby County
1-0 Callum Elder ('9 , sjálfsmark)
1-1 Craig Forsyth ('17 )
2-1 Oli McBurnie ('39 )
2-2 Sammie Szmodics ('42 )
3-2 John Egan ('75 )
4-2 Lewis Koumas ('84 )
Swansea 1 - 1 Preston NE
0-1 Daniel Jebbison ('26 )
1-1 Liam Cullen ('90 )
Watford 0 - 2 Ipswich Town
0-1 Sindre Walle Egeli ('37 )
0-2 George Hirst ('77 )
0-2 Tom Ince ('84 , Misnotað víti)
West Brom 1 - 1 Charlton Athletic
1-0 George Campbell ('45 )
1-1 Lyndon Dykes ('70 )
Wrexham 2 - 1 Portsmouth
1-0 Toby Samuel Smith ('23 )
2-0 Max Cleworth ('39 )
2-1 Zak Swanson ('49 )
Middlesbrough 1 - 1 Leicester City
0-1 Caleb Okoli ('18 )
1-1 Riley McGree ('45 )
Blackburn 1 - 2 Bristol City
1-0 Yuki Ohashi ('6 )
1-1 Emil Riis ('17 )
1-2 Scott Twine ('31 )
Swansea produce a RECORD crowd as their fans greet minority shareholder Snoop Dogg on his first match.
— george (@StokeyyG2) February 24, 2026
What a timeline we live in ????????
[???? - @philblanche] pic.twitter.com/2wQOFN8pwY
Athugasemdir



