Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
Óli Skúla um danskan framherja: Þú ert þá að segja mér fréttir
Siggi Höskulds: Það er fokking óþolandi
„Ákvað að skjóta í markmanninn og það virkaði"
Þrennt sem stóð upp úr hjá Jóa Kalla
Álitið: Hver verður stoðsendingahæstur?
Bestur í Mjólkurbikarnum - „Klúbbur sem á ekkert að vera í þessari deild“
Tap í uppbótartíma en Konni er stoltur
Fyrirliðinn Eiður Aron: Við ætlum að vinna þessa deild
   lau 26. ágúst 2017 09:00
Elvar Geir Magnússon
Gummi Hreiðars: Anton hefur alla burði til að vera næsti atvinnumaður
Icelandair
Anton Ari í leik með Val.
Anton Ari í leik með Val.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður Nordsjælland, kom inn í íslenska landsliðshópinn sem kynntur var í gær en framundan eru leikir gegn Finnlandi og Úkraínu.

Rúnar kom inn í stað Ögmundar Kristinssonar sem er úti í kuldanum hjá Hammarby í Svíþjóð og er í leit að nýju félagi. Hannes Þór Halldórsson aðalmarkvörður og Ingvar Jónsson eru á sínum stað.

Á fréttamannafundinum var sagt að Anton Ari Einarsson, markvörður Vals, væri í viðbragðsstöðu sem fjórði markvörður. Anton var á dögunum valinn besti markvörður Pepsi-deildarinnar.

Sjá einnig:
Smelltu hér til að sjá hópinn í heild

„Ögmundur er ekki að spila og er að leita sér að liði en á meðan er Rúnar Alex að spila vel. Við erum gríðarlega ánægðir með stöðuna á markvörðunum okkar og hefðum getað valið úr fimm atvinnumönnum," segir Guðmundur Hreiðarsson, markvarðaþjálfari Íslands.

Guðmundur vonast til að með félagaskiptum muni Ögmundur ná að komast í sterkari deild. „Það voru einhver tilboð og hreyfingar í gangi í sumar. Nú er hann í þeirri stöðu að hann þarf að finna sér lið sem fyrst. Vonandi gengur það upp."

„Ég hef gríðarlega mikið álit á Antoni Ara. Hann datt óvænt inn í hópinn hjá okkur í Bandaríkjunum (í janúar) og hann sýndi sig og stóð sig mjög vel í þeim hópi. Hann er búinn að leggja gríðarlega mikið á sig, meðal annars með styrktaræfingum. Hann er hjá öflugu þjálfarateymi hjá Val. Hann hefur vaxið hratt og sýnt gríðarlega mikinn stöðugleika. Að mínu mati er hann einn allra besti markvörður Pepsi-deildarinnar. Ég tel að hann hafi alla burði í það að verða okkar næsti atvinnumaður sem markvörður. Það hljóta einhver lið að vera að skoða þennan strák," segir Guðmundur.

Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner