Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 27. júlí 2020 17:30
Magnús Már Einarsson
Dean Smith öruggur í starfi hjá Aston Villa
Mynd: Getty Images
Dean Smith, stjóri Aston Villa, er 100% öruggur í starfi samkvæmt frétt Sky Sports í dag.

Aston Villa bjargaði sér frá falli í ensku úrvalsdeildinni eftir 1-1 jafntefli gegn West Ham í lokaumferðinni í gær.

Á dögunum var orðrómur um að Wes Edens og Nassef Sawiris, eigendur Aston Villa, væru ósáttir við að Aston VIlla væri í fallbaráttu eftir að hafa eytt 140 milljónum punda í nýja leikmenn í fyrrasumar.

Sky segir hins vegar að Smith sé mjög öruggur í starfi og að hann hefði haldið starfinu jafnvel þó að liðið hefði fallið niður í Championship deildina.

Smith tók við Aston Villa í október 2018 en þá var liðið í neðri hlutanum í Championship deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner