Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 10:58
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Vísir 
Arnór Ingvi ætti að vera klár fyrir stórleikinn gegn Val
Arnór Ingvi í leiknum í gær.
Arnór Ingvi í leiknum í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Ingvi Traustason, einn besti leikmaður Bestu deildarinnar, var tekinn af velli eftir rúmlega hálftíma í 4-2 sigri hans liðs KR gegn FH.

Vísir fjallar um að Arnór ætti að vera orðinn klár fyrir næstu umferð en KR heimsækir Val í stórleik á laugardagskvöld.

Lestu um leikinn: KR 4 -  2 FH

Arnór er þaulreyndur landsliðs- og atvinnumaður sem hefur komið með meira jafnvægi inn á miðsvæði KR.

„Hann stífnaði aðeins upp og þetta var varúðarráðstöfun. Orri Hrafn (Kjartansson) kom sterkur inn, eins og hann hefur gert í öllum leikjum hingað til. En Arnór ætti að vera klár um helgina,“ segir Óskar Hrafn við Vísi.

KR er með fullt hús stiga í Bestu deildinni eftir fjórar umferðir en Valur er þremur stigum á eftir. Það er því heldur betur gómsætur leikur framundan.
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 4 4 0 0 18 - 8 +10 12
2.    Víkingur R. 4 3 1 0 10 - 3 +7 10
3.    Valur 4 3 0 1 10 - 5 +5 9
4.    Breiðablik 4 2 2 0 6 - 1 +5 8
5.    Fram 4 2 1 1 11 - 6 +5 7
6.    Stjarnan 4 2 0 2 10 - 11 -1 6
7.    Þór 4 2 0 2 5 - 10 -5 6
8.    Keflavík 4 1 1 2 5 - 7 -2 4
9.    ÍA 4 0 2 2 4 - 9 -5 2
10.    KA 4 0 1 3 4 - 8 -4 1
11.    FH 4 0 1 3 5 - 11 -6 1
12.    ÍBV 4 0 1 3 5 - 14 -9 1
Slapp
banner
banner