Dvöl Ethan Nwaneri hjá Marseille í Frakklandi var ekki eins og franska félagið hafði vonast til, en þjálfari liðsins býst við meiru af þessum unga Arsenal-manni.
Nwaneri er 19 ára gamall sóknarsinnaður leikmaður sem kom til Marseille á láni frá Arsenal í vetrarglugganum.
Roberto De Zerbi fékk hann með það í huga að styrkja sóknarleikinn fyrir síðustu mánuði tímabilsins. Honum var kastað beint í liðið og skoraði hann í fyrsta leik, en fengið fá tækifæri síðan þjálfarinn hætti og Habib Beye tók við.
„Hann er gæðaleikmaður, en hann verður að gefa okkur miklu meira hvað varðar daglega skuldbindingu. Aðrir leikmenn hafa gefið miklu meira,“ sagði Beye.
Nwaneri hefur ekki byrjað í síðustu ellefu leikjum Marseille og var ónotaður varamaður í 1-1 jafnteflinu gegn Nice í síðustu umferð.
Marseille á í hættu að missa af Meistaradeildarsæti, en það er fjórum stigum frá sætinu þegar þrjár umferðir eru eftir.



