„Mér finnst svo leiðinlegt að við þurfum að taka það úr þessum leik hvað KA lítur hrikalega illa út og í enn eitt skiptið sem þeir eru að byrja illa. Það sem við eigum að taka út úr þessum leik er hvað Keflavík lítur vel út," sagði Valur Gunnarsson þegar rætt var um leik KA og Keflavíkur í Innkastinu í gærkvöldi.
Keflavík gerði góða ferð norður á Akureyri á sunnudag og tók þar stigin þrjú með sér heim. Sigurinn var sanngjarn en KA-menn litu hræðilega út í leiknum.
Keflavík gerði góða ferð norður á Akureyri á sunnudag og tók þar stigin þrjú með sér heim. Sigurinn var sanngjarn en KA-menn litu hræðilega út í leiknum.
„Þeir eru mjög skemmtilegir og hafa komið mér þvílíkt á óvart. Ég var ekkert hoppandi kátur þegar þeir komust upp," sagði Elvar Geir Magnússon um Keflavíkurliðið.
En enn eitt tímabilið er KA að byrja illa.
„Þegar KA hefur átt lélega leiki, sem hefur vanalega verið hálft mótið á hverju ári, þá hefur hann (Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA) nánast aldrei gengist við því að þeir séu eitthvað slakir og alltaf talað um að þetta sé alveg að koma. Þarna gengu leikmenn hans fram af honum í fyrsta sinn með því að vera lélegir, andlausir, baráttulausir og huglausir. Þeir voru ömurlegir. Þetta er alvöru áhyggjuefni," sagði Tómas Þór Þórðarson.
Mikið var lagt í lið KA fyrir mót þar sem Danijel Dejan Djuric var keyptur og svo var Oliver Heiðarsson fenginn stuttu eftir að mótið byrjaði.
„Haddi gerir tvöfalda skiptingu í hálfleik og tekur Danijel Dejan Djuric út af. Mjög erfið byrjun hjá Djuric og það er ákveðin yfirlýsing að taka hann þarna út af. Það er áhyggjuefni fyrir KA ef Djuric ætlar ekki að vera upp á sitt besta. Þessi miðja hjá KA var ekki upp á marga fiska og Keflavík óð yfir hana. Að mæta svona í þennan leik, ég er ekki hissa að Haddi hafi verið brjálaður," sagði Valur og hélt áfram:
„Það sem þeir hafa hugsað núna er að í staðinn fyrir að fá innspýtingu í liðið um mitt mót, fá Birni Snæ eða einhverja kanónu inn í liðið á miðju móti þá fá þeir Oliver Heiðarsson og Danijel Dejan Djuric fyrir mót, ætla að koma inn í mótið af krafti og gera þetta almennilega frá byrjun. Hvað ætla þeir að gera núna? Eru þeir með annan milljón kall á mánuði í vörnina hjá sér? Þeir þurfa að líta inn á við. Ég veit ekki hvað maður á að segja, þetta var svo ógeðslega lélegt."
Hægt er að hlusta á Innkastið í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.



