Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 28. apríl 2026 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Juventus tilbúið að bjóða Alisson langan samning
Mynd: EPA
Ítalska félagið Juventus er tilbúið að bjóða brasilíska markverðinum Alisson Becker langan samning í sumar en þetta segir Fabrizio Romano á X.

Juventus hefur átt í viðræðum við föruneyti Alisson um möguleikann á að fá hann í sumarglugganum.

Alisson, sem er 33 ára gamall, á eitt ár eftir af samningnum við Liverpool, en hann er sjálfur opinn fyrir því að fara í sumar ef Juventus nær samkomulagi við enska úrvalsdeildarfélagið.

Samkvæmt Romano er Juventus reiðubúið að bjóða Alisson lengri samning en þann sem hann er með hjá Liverpool.

Þetta er allt í höndum Liverpool sem þarf að taka ákvörðun varðandi framtíð hans, en það er óvíst hvort félagið sé reiðubúið að leyfa honum að fara sama sumar og reynsluboltarnir Andy Robertson og Mohamed Salah yfirgefa félagið.
Slapp
banner
banner