Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 11:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Albert kaupir íbúð í Reykjavík á meira en hálfan milljarð
Albert Guðmundsson.
Albert Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Albert Guðmundsson, landsliðsmaður sem spilar með Fiorentina á Ítalíu, festi nýverið kaup á þakíbúð að Frakkastíg í Reykjavík fyrir 560 milljónir króna.

Viðskiptablaðið segir frá þessu en íbúðin er 327 fermetrar að stærð.

Í íbúðinni eru 3-4 herbergi en möguleiki er á að minnka stofuna á neðri hæð og bæta þar við þriðja svefnherberginu. Íbúðinni fylgja tveir lokaðir bílskúrar í bílakjallara og er hún með tveimur þaksvölum.

Hægt er að skoða myndir af íbúðinni á vef Viðskiptablaðsins með því að smella hérna.

Albert hefur verið býsna duglegur að fjárfesta í fasteignum undanfarin misseri, bæði hér á Íslandi og á Ítalíu þar sem hann spilar fótbolta.
Slapp
banner
banner
banner