Mohamed Salah fór meiddur af velli þegar Liverpool tók á móti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni um liðna helgi og óttast margir stuðningsmenn Liverpool að þeir séu búnir að sjá það síðasta af Salah í Liverpool búningi.
Salah fann fyrir meiðslum sem litu út fyrir að vera smávægileg tognun aftan í læri. Það jákvæða var að hann gat gengið sjálfur af velli.
Salah fann fyrir meiðslum sem litu út fyrir að vera smávægileg tognun aftan í læri. Það jákvæða var að hann gat gengið sjálfur af velli.
Einungis eru fjórir leiki framundan hjá Liverpool áður en Salah kveður í sumar og lokaleikurinn, heimaleikur gegn Brentford, fer fram 24. maí, eftir mánuð.
„Hann á einn leik inni," sagði Magnús Haukur Harðarson þegar rætt var um Salah í Enski boltinn hlaðvarpinu í gær.
„Það væri ógeðslega leiðinlegt ef þetta væri síðasta stundin. Vonandi nær hann leiknum gegn Brentford, síðasta heimaleiknum, jafnvel þó það sé ekki bara nema smástund. Hann fái svona Katrínu Ásbjörns kveðjustund þar sem hann byrjar inn á en er tekinn út af. Ég er alveg til í það."
Myndi Liverpool ekki gera það fyrir Salah?
„Auðvitað maður, bara eitthvað fallegt," sagði Magnús Haukur.
„Ég hef verið lítill í mér út af tveimur leikmönnum sem hafa farið frá Liverpool. Fyrst var það Robbie Fowler þegar hann fór til Leeds og svo þegar Steven Gerrard kvaddi. Núna verður það þannig þegar Salah hættir. Ég hef verið fremstur í þeirri rútu."
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan og á hlaðvarpsveitum.



