Stuðningsmenn Southampton þurfa að fara í gegnum umspilið til að komast aftur upp í deild þeirra bestu.
Southampton 2 - 2 Ipswich Town
0-1 Wes Burns ('48 )
1-1 Ryan Manning ('58 )
2-1 Cyle Larin ('80 )
2-2 Jack Clarke ('87 )
0-1 Wes Burns ('48 )
1-1 Ryan Manning ('58 )
2-1 Cyle Larin ('80 )
2-2 Jack Clarke ('87 )
Southampton og Ipswich Town áttust við í gríðarlega mikilvægum leik í toppbaráttu Championship deildarinnar í kvöld og var staðan markalaus eftir jafnan fyrri hálfleik þar sem bæði lið fengu sinn skerf af hálffærum.
Wes Burns náði forystunni fyrir Ipswich í upphafi síðari hálfleiks en Ryan Manning og Cyle Larin snéru stöðunni við fyrir heimamenn.
Southampton var 2-1 yfir þegar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og gat, með sigri, bætt stöðu sína umtalsvert í baráttunni um 2. sæti deildarinnar.
Jack Clarke leyfði það þó ekki og gerði jöfnunarmark fyrir Ipswich, svo lokatölur urðu 2-2.
Ipswich situr því áfram í öðru sæti, einu stigi fyrir ofan Millwall og tveimur fyrir ofan Middlesbrough fyrir lokaumferð deildartímabilsins.
Southampton er aftur á móti búið að missa af tækifærinu til að berjast um annað sætið en er öruggt með umspilssæti.
Ipswich tekur á móti QPR í lokaumferðinni og getur tryggt sér afar dýrmætt sæti í ensku úrvalsdeildinni með sigri þar.
Tvö bestu lið Championship deildarinnar fara upp í úrvalsdeildina og er Coventry búið að tryggja sér toppsætið með ellefu stiga forystu.



