Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaraspáin - Verða of stórir bitar
Gylfi og Óskar eru sérfræðingarnir.
Gylfi og Óskar eru sérfræðingarnir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bayern sækir PSG heim í kvöld.
Bayern sækir PSG heim í kvöld.
Mynd: EPA
Í kvöld fara undanúrslitin af stað í Meistaradeild Evrópu. Það eru tvö mjög áhugaverð einvígi framundan.

Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.

Gylfi Tryggvason
PSG 3 - 1 Bayern
Bayern, eins góðir og þeir eru, geta ekkert gert gegn þessu PSG liði. Ef Bayern ætla að mæta PSG hátt á vellinum, sem ég reikna með að þeir geri, munu PSG yfirspila þá. Ef þeir falla, sem ég reikna ekki með að þeir geri, munu PSG yfirspila þá. 3-1 niðurstaðan.

Óskar Smári Haraldsson
PSG 1 - 2 Bayern
Þetta verður skemmtilegur leikur. Luis Diaz er í Bayern og hann ásamt Kane verða of stórir bitar fyrir PSG. 2-1 og þeir tveir með mörkin, Dembele skorar fyrir PSG.

Fótbolti.net - Sverrir Örn Einarsson
PSG 2 - 1 Bayern
PSG mun ráða ferðinni á heimavelli í kvöld og herja á Þjóðverjana lengi vel. Þýski aginn og stanslaust gelt Kompany á leikmenn sína verður þó til þess að heimamenn setja aðeins tvö mörk á fyrsta klukkutímanum eða svo. Bayern menn fá svo vítaspyrnu undir lok leiks sem nýtist af gömlum vana og fer með góðan möguleika heim til Munchen.

Vert að minnast á að Bayern hefur unnið síðustu 5 gegn PSG samt.

Staðan í heildarkeppninni:
Óskar Smári - 27
Gylfi Tryggva - 27
Fótbolti.net - 20
Slapp
banner
banner