Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 12:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Florentino Perez æstur í Mourinho
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: EPA
Jose Mourinho er sá stjóri sem Florentino Perez, forseti Real Madrid, vill helsta ráða í sumar.

Madrídastórveldið er í stjóraleit eftir að Xabi Alonso var rekinn fyrr á tímabilinu. Alvaro Arbeloa hefur stýrt Madrídingum til bráðabirgða en ólíklegt er að hann verði áfram.

Hinn 63 ára gamli Mourinho er í dag stjóri Benfica en Real Madrid getur fengið hann lausan fyrir 3 milljónir evra.

Mourinho hefur áður stýrt Real Madrid, frá 2010 til 2013. Á þeim tíma vann liðið spænsku úrvalsdeildina einu sinni, spænska bikarinn einu sinni og Ofurbikarinn á Spáni einu sinni.

David Ornstein hjá The Athletic segir að Perez, forseti Real, sé mjög spenntur fyrir því að fá Mourinho aftur til félagsins en það séu ekki allir í stjórninni á sama máli með það. Mourinho sé þó líklegur í starfið.
Slapp
banner
banner