Daníel Hafsteinsson kom inn í lið Víkinga fyrir Gylfa Þór í dag og átti frábæran leik á miðjunni.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 4 - 0 ÍA
„Við vorum alveg að spila fínt en það var erfitt að bera upp boltann á móti vindinum svo það var fínt að komast með 0-0 inn í hálfleik og síðan héldum við bara áfram að gera það sama nema með vindinn í bakið svo það varð bara þægilegt í lokin.''
Daníel var aðeins spurður út í samkeppnina og bekkjarsetuna í síðasta leik.
„Við erum með marga mjög góða leikmenn og marga miðjumenn, þetta er mikil samkeppni en ég vill spila alla leiki svo maður reynir að standa sig.''
Nánar er rætt við Daníel í spilaranum hér að ofan.
























