Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 16:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Höskuldur æfði í dag - Kiddi Jóns kominn á ról
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, missti af leik liðsins gegn Þór í gær vegna veikinda. Hann hins vegar æfði með liðinu í dag og er búinn að hrista veikindin af sér. Frá þessu greinir Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari liðsins, í samtali við Fótbolta.net.

Blikar unnu án fyrirliðans í gær en hann ætti að vera til taks þegar heimsækja Vestmannaeyjar um komandi helgi. Breiðablik mætir ÍBV á sunnudag.

Lestu um leikinn: Breiðablik 4 -  0 Þór

Jónatan Guðni Arnarsson missti af þá af leiknum í gær vegna nárameiðsla sem ættu ekki að vera alvarleg.

Unglingalandsliðsmaðurinn Birkir Þorsteinsson (2009) fór í myndatóku vegna meiðsla og er óvíst hvenær hann snýr til baka.

Þá styttist í Kristin Jónsson sem meiddist á hné á æfingu, það tognuðu liðbönd en hann er aftur kominn á ról og byrjaður að hlaupa.
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 4 4 0 0 18 - 8 +10 12
2.    Víkingur R. 4 3 1 0 10 - 3 +7 10
3.    Valur 4 3 0 1 10 - 5 +5 9
4.    Breiðablik 4 2 2 0 6 - 1 +5 8
5.    Fram 4 2 1 1 11 - 6 +5 7
6.    Stjarnan 4 2 0 2 10 - 11 -1 6
7.    Þór 4 2 0 2 5 - 10 -5 6
8.    Keflavík 4 1 1 2 5 - 7 -2 4
9.    ÍA 4 0 2 2 4 - 9 -5 2
10.    KA 4 0 1 3 4 - 8 -4 1
11.    FH 4 0 1 3 5 - 11 -6 1
12.    ÍBV 4 0 1 3 5 - 14 -9 1
Slapp
banner
banner
banner