Brasilíski markvörðurinn Ederson fékk mjög heimskulegt rautt spjald í erkifjendaslag Fenerbahce og Galatasaray um helgina, en hann lét reiði sína bitna á VAR-skjánum er hann gekk af velli.
Stuðningsmenn Fenerbahce hafa verið allt annað en ánægðir með Ederson síðan hann kom frá Manchester City á síðasta ári og fyllti rauða spjaldið mælinn hjá þeim.
Hann fékk gult á 62. mínútu leiksins og stuttu síðar rautt fyrir leiktöf, en hann lét reiði sína bitna á VAR-skjánum þegar hann gekk af velli með því að lemja í skjáinn.
Fenerbahce tapaði leiknum, 3-0, í titilbaráttuslag og er Galatasaray nú með sjö stiga forystu á toppnum þegar þrjár umferðir eru eftir.
Samkvæmt erlendum miðlum verður þetta fyrsta og síðasta leiktíð Ederson með Fenerbahce sem er sagður vilja fara til Sádi-Arabíu í sumar.
Fenerbahce ederson received a red card and hit the var when he was about to leave the field. pic.twitter.com/t86UgYMgZ5
— ... (@officialffsnews) April 26, 2026


