Serbneski framherjinn Dusan Vlahovic gæti verið á förum frá ítalska félaginu Juventus í sumarglugganum, en hann er orðaður við tvö stórlið.
Þessi 26 ára gamli leikmaður hefur spilað takmarkaðar mínútur hjá Juventus á þessari leiktíð vegna meiðsla. en þó gert ágætlega og skorað sex mörk í nítján leikjum ásamt því að leggja upp tvö mörk.
Samkvæmt ítalska blaðamanninum Gianluca Di Marzio ætlar Juventus ekki að framlengja við Vlahovic sem rennur út á samningi í sumar.
AC Milan og Bayern München eru meðal félaga sem hafa áhuga á Vlahovic, en Bayern mun missa framherjann Nicolas Jackson aftur til Chelsea þegar lánssamningur hans rennur út og vill Vincent Kompany annan framherja í staðinn.
Vlahovic kom til Juventus frá Fiorentina árið 2022 og síðan þá komið að 80 mörkum í 164 leikjum.




