Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 11:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sagður hafa gert upp á milli Liverpool og Man Utd
Micky van de Ven.
Micky van de Ven.
Mynd: EPA
Micky van de Ven vill helst fara til Liverpool ef hann yfirgefur Tottenham í sumar, þrátt fyrir áhuga frá Manchester United.

Van de Ven, sem er 25 ára, er að íhuga framtíð sína eftir þrjú ár hjá Spurs sem berst nú fyrir því að forðast falldrauginn.

Þrátt fyrir erfitt tímabil hjá Tottenham er Van de Ven eftirsóttur af bæði Liverpool og Man Utd.

En í slæmum fréttum fyrir Man Utd myndi Van de Ven hafna félagaskiptum á Old Trafford ef möguleiki er á að ganga til liðs við Liverpool samkvæmt talkSPORT.

Bæði Man Utd og Liverpool eru talin ætla að styrkja sig í miðvarðarstöðunni í sumar. Meiðslavandræði United í hjarta varnarinnar hafa dregið fram áhyggjur af breidd hópsins, sérstaklega þar sem liðið er á leið aftur í Evrópukeppni á næsta tímabili.
Slapp
banner
banner
banner