„Ég fer ekki aftur inn í eldhúsið,“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, hlæjandi í viðtali við Sýn þegar hann var spurður út í brunasár á andliti sínu.
Valur Páll Eiríksson íþróttafréttamaður tók viðtal við Hemma sem fékk brunasár þegar hann var að elda fyrir Valsliðið um helgina.
„Á laugardaginn ákvað ég að elda fyrir Valsliðið, kjúkling og sætar kartöflur. Ég var með einhvern risa ofn og ákvað að opna og það kom svona rosalega heit gufan framan í mig. Ég brenndi á mér hálft andlitið en það var þess virði því þeir sýndu það í dag hérna að þessi orka skilaði sér."
Hér að neðan má sjá skemmtilegt myndskeið sem Vísir birti úr myndbandinu þar sem slegið er á létta strengi.
Hemmi gat leyft sér að brosa í gær, Valur vann 4-2 útisigur gegn Stjörnunni sem var þriðji sigurleikur liðsins í röð.

Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 4 Valur