Harry Maguire, leikmaður Manchester United, hrósaði Casemiro í hástert eftir 2-1 sigurinn á Brentford í gær og sagði hann einn besta leikmann sem hann hefur séð í loftinu.
Casemiro skoraði mikilvægt skallamark fyrir Man Utd í leiknum gegn Brentford eftir skallasendingu frá Maguire, en Brasilíumaðurinn hefur verið duglegur að sækja mikilvæg mörk fyrir liðið.
Maguire fór ekki sparlega í hrósið þegar hann talaði um Casemiro og hættuna sem hann skapar í teignum.
„Hann er sá besti sem ég hef séð og unnið með, þegar það kemur að grimmd og tækni í teignum. Hann er svo skilvirkur og hefur komið með ótrúlega orku inn í liðið á þessu tímabili, því án markanna, værum við í hrikalegum málum í deildinni.“
„Ég hef spilað í mörgum liðum þar sem ég er með einn eða tvo leikmenn að dekka mig, en ég einbeiti mér alltaf að því sem ég er að gera. Ég held að öll liðin eru farin að bera virðingu fyrir því hversu mikil ógn stafar af Casemiro í teignum. Þau þurfa að hafa mörg augu á honum og setja góðan varnarmann á hann í stað þess að setja tvo á mig.“
„Þetta opnar svæði upp fyrir okkur báða. Þegar við spilum báðir saman þá skorar Casemiro fleiri mörk, en ég fæ líka fleiri tækifæri. Það er gott að við erum með skotmark á okkur og séum ógnandi í teig andstæðinganna. Það gerir þetta mun erfiðara fyrir andstæðinginn,“ sagði Maguire.
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 34 | 22 | 7 | 5 | 64 | 26 | +38 | 73 |
| 2 | Man City | 33 | 21 | 7 | 5 | 66 | 29 | +37 | 70 |
| 3 | Man Utd | 34 | 17 | 10 | 7 | 60 | 46 | +14 | 61 |
| 4 | Liverpool | 34 | 17 | 7 | 10 | 57 | 44 | +13 | 58 |
| 5 | Aston Villa | 34 | 17 | 7 | 10 | 47 | 42 | +5 | 58 |
| 6 | Brighton | 34 | 13 | 11 | 10 | 48 | 39 | +9 | 50 |
| 7 | Bournemouth | 34 | 11 | 16 | 7 | 52 | 52 | 0 | 49 |
| 8 | Chelsea | 34 | 13 | 9 | 12 | 53 | 45 | +8 | 48 |
| 9 | Brentford | 34 | 13 | 9 | 12 | 49 | 46 | +3 | 48 |
| 10 | Fulham | 34 | 14 | 6 | 14 | 44 | 46 | -2 | 48 |
| 11 | Everton | 34 | 13 | 8 | 13 | 41 | 41 | 0 | 47 |
| 12 | Sunderland | 34 | 12 | 10 | 12 | 36 | 45 | -9 | 46 |
| 13 | Crystal Palace | 33 | 11 | 10 | 12 | 36 | 39 | -3 | 43 |
| 14 | Newcastle | 34 | 12 | 6 | 16 | 46 | 50 | -4 | 42 |
| 15 | Leeds | 34 | 9 | 13 | 12 | 44 | 51 | -7 | 40 |
| 16 | Nott. Forest | 34 | 10 | 9 | 15 | 41 | 45 | -4 | 39 |
| 17 | West Ham | 34 | 9 | 9 | 16 | 42 | 58 | -16 | 36 |
| 18 | Tottenham | 34 | 8 | 10 | 16 | 43 | 53 | -10 | 34 |
| 19 | Burnley | 34 | 4 | 8 | 22 | 34 | 68 | -34 | 20 |
| 20 | Wolves | 34 | 3 | 8 | 23 | 24 | 62 | -38 | 17 |


