Það var annasamur dagur hjá fótboltadómaranum Arnari Þór Stefánssyni í gær en hann dæmdi leik KR og FH í Bestu deildinni.
Fyrr um daginn stóð hann í stórræðum á Alþingi þar sem hann mætti á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Fyrr um daginn stóð hann í stórræðum á Alþingi þar sem hann mætti á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Lestu um leikinn: KR 4 - 2 FH
Arnar starfar sem hæstaréttarlögmaður og á vb.is er fjallað um að hann telji spurninguna sem bera á upp í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu vera gallaða.
Arnar hefur dæmt í efstu deild í boltanum undanfarin ár og meðal annars fengið það verkefni að dæma bikarúrslit kvenna.
Alexander Tonini, fréttamaður Fótbolta.net, gaf Arnari fimm í einkunn fyrir dómgæsluna í leiknum í gær; sem KR vann 4-2.
„Þetta var erfiður leikur að dæma sökum miklum hraða, blautu gervigrasi og roki. Og alveg hægt að benda á nokkra dóma í leiknum sem hefði líklegast átt að dæma með öðrum hætti en að því sögðu þá hef ég séð mun verri dómgæslu," skrifaði Alexander í skýrslu um leikinn.




