Franski sóknarmaðurinn Eli Junior Kroupi er á óskalista Manchester City fyrir sumargluggann samkvæmt belgíska blaðamanninum Sacha Tavolieri.
Kroupi er 19 ára gamall og kom til Bournemouth frá Lorient á síðasta ári.
Bournemouth staðfesti kaupin á honum í byrjun síðasta árs, en gekk ekki formlega í raðir félagsins fyrr en um sumarið, nokkrum vikum eftir að hafa verið valinn besti leikmaður frönsku B-deildarinnar.
Frakkinn hefur tekið stór skref hjá Bournemouth og er líklegt að hann staldri stutt við, en samkvæmt Tavolieri er Pep Guardiola, stjóri Manchester City, mikill aðdáandi Frakkans og væri til í að kaupa hann í sumar.
Talið er að Bournemouth sé ekki reiðubúið að selja leikmanninn undir 70 milljónum punda. Sá verðmiði endurspeglar bæði framtíðarmöguleika hans og mikilvægi hans fyrir liðið.


