Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 17:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Breiðablik hefur rætt við Árna Vill
Mynd: Heimasíða Al Taraji
Árni Vilhjálmsson hefur rætt við Breiðablik um möguleikann á því að ganga aftur í raðir uppeldisfélagsins. Árni er leikmaður Al-Sahel í Sádi-Arabíu og samningsbundinn félaginu fram á sumarið sem flækir viðræðurnar.

Hrafnkell Freyr Ágústsson, stuðningsmaður Breiðablisk, sagði í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag að Árni hefði verið á Íslandi undanfarnar vikur og yrði að rifta við félagið úti til að geta samið við Breiðablik. Hrafnkell sagði þá frá því að Blikar væru með hollenskan framherja á blaði ef ekki næðist að fá félagaskipti fyrir Árna.

„Við höfum rætt við Árna, ég get staðfest það," segir Ólafur.

„En það er í raun ekkert meira um það að segja, hann er samningsbundinn erlendis. En það er ekkert leyndarmál að við höfum heyrt í honum."

Myndiru segja að í draumaheimi fái Árni félagaskipti fyrir gluggalok?

„Það er kannski ekki tímabært að segja neitt um það, hann er samningsbundinn öðru félagi fram á sumar og ekkert hægt að tala um það," segir þjálfarinn.

Árni er fæddur árið 1994 og eins og fyrr segir uppalinn Bliki. Hann lék síðast með liðinu tímabilið 2021 en hefur leikið erlendis síðan. Hann er unnusti Söru Bjarkar Gunnarsdóttur sem spilar með Al Qadsiah í Sádi-Arabíu.
Slapp
banner
banner