Donni þjálfari Þór/KA var að vonum ánægður með sigurinn í dag á móti ÍBV. Þór/KA vann þá 3-0 sigur og varð í kjölfari meistari meistaranna.
Lestu um leikinn: Þór/KA 3 - 0 ÍBV
„Mér fannst leikurinn bara að mörgu leiti góður, það voru aðeins erfiðar aðstæður og mikill vindur, hliðarvindur og það sást svona aðeins á spilinu hjá báðum liðum. Mér fannst við hafa tök og hald á þessum leik frá fyrstu mínútu til loka."
Bryndís Lára varði mark Þór/KA í dag en Helena Jónsdóttir meiddist illa í leik á móti Stjörnunni fyrr í vikunni.
„Helena er meidd og verður meidd í einhvern tíma, það skýrist á morgun hvort að krossböndin séu farinn. Við höfum áhyggjur af því að þetta sé slæmt, en við verðum bara að sjá til og vonum bara það besta."
Fyrsti leikur Þór/KA í Pepsí deildinni er næsta laugardag, 5. maí og sækir þá liðið Grindarvík heim.
„Við ætlum að koma brjálaðar til leiks á laugardaginn á móti mjög góðu liði Grindarvíkur sem vann okkur síðast."





















