Albert Guðmundsson, leikmaður AZ Alkmaar í Hollandi, fékk tækifæri í byrjunarliði liðsins í dag er liðið vann Heracles, 2-0.
Albert hefur ekki fengið mörg tækifæri til að sýna sig með AZ í byrjun tímabils en hann fékk þá sénsinn í dag.
Hann meiddist þó á 28. mínútu og þurfti að fara af velli en hinn afar öflugi Calvin Stengs kom inná í hans stað.
Stengs skoraði seinna mark AZ en eftir sigurinn er AZ í 3. sæti með 19 stig.
28. Wissel AZ:
— AZ (@AZAlkmaar) September 29, 2019
🔄 Stengs voor Gudmundsson (blessure).#azher 0-0 pic.twitter.com/NO8NEyhc1d
Athugasemdir